Mannyrkjustöðin býður upp á plöntutengsla leiðangur í rútu um Kleifarvatn og nágrenni. Í ferðinni verður farið í gegnum plöntutengsla æfingar sem geta skapað titring sem aðstoðar manneskjur í mótun plöntumiðaðra viðhorfa. Þannig er ferðast um bæði ytra og innra landslag. Eins er leiðangurinn eiginlegt frí frá mannmiðuðum viðhorfum, sem valda oft streitu og angist.
Lykilþemu ferðarinnar eru rödd, sjón, hreyfing og nesti. Þannig er ferðalaginu skipt upp í fjögur þemastopp sem byggja á þátttöku plöntuverðanda. Innlegg og æfingar eru við hvert stopp þar sem söngur, plöntugreiningar, skali og ganga munu koma við sögu.
Boðið verður upp á tvær ferðir sunnudaginn 5.sept
Áætlaður tími eru u.þ.b. 2,5 klst.
Innifalið í ferð er vatn, matur og kaffi.
Ferðin er hugsuð sem fyrstu skref í átt að mótun nýs hugarfars, þar sem plöntur veita tækifæri til lærdóms, skilnings og vaxtar.
Meðlimir Mannyrkjustöðvar Reykjavíkur eru:
Búi Bjarmar Aðalsteinsson er hönnuður sem hefur fengist við tengsl hönnunar við aðrar listgreinar og skoðað hvernig má nýta hugmyndir um hönnun í nýju samhengi. Undanfarið hefur hann fengist við að skoða mörk sviðslista og hönnunar þar sem eiginleikar hins stórbrotna augnabliks eru færðar í hversdagsleikan. Þar sem sviðsmyndin, leikmunir, búningar og framvinda eru hnýtt inní borgarlandslagið fær þátttakendur til að staldra við ævintýrin sem eru allt í kringum okkur.
Búi útskrifaðist úr sálfræði við Háskóla Íslands, vöruhönnun frá Listaháskóla Íslands og samfélagsmiðaðri hönnun og list frá Hönnunar Akademíunni í Eindhoven. Búi er einnig meðstofnandi og þjónustufulltrúi Mannyrkjustöðvarinnar.
Hrefna Lind Lárusdóttir er sviðslistakona sem starfar á mörkum listforma, sviðslistar, myndlistar, tónlistar og hönnunar. Verkin hennar eiga það til að færa áhorfendur inná mörk raunveruleika og fantasíu þar sem hún afbyggir hversdagsleikann í þeim tilgangi að hitta áhorfandann í ókönnuðu rými. Hrefna er ein af stofnmeðlimi hljómsveitarinnar The Post Performance Blues Band, meðstofnandi og þjónustufulltrúi Mannyrkjustöðvar Reykjavíkur sem er mannræktaraðstaða þar sem fólk getur tengst sinni innri plöntu og stofnandi verkefnisins Múrar brotnir sem er listavinnusmiðja í fangelsum landsins. Hrefna lærði sviðslistir við Naropa University og Listaháskóla Íslands.
Sviðslistamaðurinn Ragnar Ísleifur Bragason fæddist í Reykjavík árið 1977. Undanfarin ár hefur hann tekið þátt í bæði dans- og leiksýningum með leikhópunum 16 elskendur og Kriðpleir ásamt fjölda annarra hópa. Hann er einnig meðhöfundur og leikari í útvarpsleikritunum “Bónusferðin”, “Litlu jólin” og “Vorar skuldir” ásamt leikhópnum Kriðpleir. Ragnar hefur einnig skrifað eigin leikverk. Ragnar hefur kennt við Listaháskóla Íslands og Lungaskólann á Seyðisfirði. Hann útskrifaðist frá sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands.