top of page

Plöntuleikhús vinnusmiðja í Sjóminjasafninu

Plöntutíð

15. feb. 2022

Á plöntuleikhússmiðju á Sjóminjasafninu í Reykjavík býðst plöntusérfræðingum á öllum aldri að prófa sig áfram í leikritun og búa til hugmyndir fyrir senur sem leiknar eru fyrir, með eða af plöntum. Farið verður í leiki og gerðar leiklistaræfingar.

Leiðbeinendur smiðjunnar eru sviðshöfundarnir Andrea Elín Vilhjálmsdóttir og Lóa Björk Björnsdóttir. Best er að mæta í pörum eða hópum sem eru blanda af krökkum og fullorðnum svo allir hafi góðan ritara.

Listrænn stjórnandi plöntuleikhússins er Lóa Björk Björnsdóttir en hún útskrifaðist af sviðshöfundabraut Listaháskólans árið 2017.

Þátttaka er ókeypis í tilefni af vetrarfríi.

Vegna sóttvarnaviðmiða er aðeins pláss fyrir 25 þátttakendur og bóka þarf fyrirfram.

Skráning fer fram á https://bit.ly/3Gxvy8E


Ljósmyndari Maria-Magdalena Ianchis

Ljósmyndari Maria-Magdalena Ianchis


bottom of page