top of page

Hefur þú verið að þróa performans fyrir plönturnar þínar? Hefur þú verið að sefa loftlagskvíða með sviðslislista- og leikhús tækninni þinni? 

Kæri sviðslistamaður, Plöntutíð kallar eftir verkum!

Plöntutíð er sviðslistavettvangur á Íslandi sem skipuleggur
hátíð 3.— 5. September 2021 í Reykjavík og Kópavogi.

Viðburðir hátíðarinnar fara mestmegnis fram utandyra í bakgörðum listamanna, almenningsgörðum, gróðurhúsum, skógum, stöðum sem þig óraði ekki fyrir og á internetinu. Ef þú ert að vinna með lifandi flutning á efni sem tengist náttúrunni, plöntum, dýrum, vistkerfinu, þolmörkum jarðar, sjöttu útrýmingunni, sjálfbærni o.s.fv. þá er Plöntutíð rétti vettvangurinn fyrir þig. 

Við tökum við tillögum til 7.mars.

 

Sýningarlaun upp á 100.000 kr. verða í boði fyrir valin verk.

 

Hverjir geta sótt um?

Sviðshöfundar, leikarar, dansarar, leikstjórar, danshöfundar, leikskáld, myndlistamenn og aðrir listamenn sem vinna með gjörninga, lifandi innsetningar eða lifandi flutning.

137592623_155246183041511_49012551410228
bottom of page