top of page
Photo17_13A.jpg
PLO_2021_FBevent_1920x1005_plontuleikhus_vinnustofa_v1.png

4. sept kl. 13:00 - 15:00

Gerðarsafn

Frítt

Hvað er plöntuleikhús? Er hægt að búa til leikhús þar sem plöntur eru einu listamennirnir? 
Á Plöntuleikhús vinnusmiðju býðst plöntusérfræðingum á öllum aldri að rannsaka nýjar og skapandi leiðir í leikritun og gerð sviðsverka sem leikin eru fyrir, með eða af plöntum. Listrænn stjórnandi Plöntuleikhússins og leiðbeinandi vinnustofunnar er sviðshöfundurinn Lóa Björk Björnsdóttir. 

Vinnustofa fyrir krakka hefst fimmtudaginn 19. ágúst. Vinnustofan verður þriðjudaga og fimmtudaga milli 16 og 18 í Grasagarðinum og lýkur með sýningu í Grasagarðinum sunnudaginn 5. September.

Skráning með tölvupósti plontutid@gmail.com

Vinnustofa fyrir fjölskyldur verður haldin í Gerðarsafni laugardaginn 4.sept kl 13 - 15. 

Best er að mæta í pörum eða hópum sem eru blanda af krökkum og fullorðnum svo allir hafi góðan ritara.

 

Hlökkum til að sjá ykkur!

​Lóa Björk Björnsdóttir útskrifaðist af sviðshöfundabraut Listaháskólans árið 2017. Frá útskrift hefur hún lagt áherslu á uppistand, hlaðvarps- og sjónvarpsþáttagerð. Meðal verkefna sem Lóa hefur unnið að eru Fyndnustu mínar uppistandskvöld, hlaðvarpið Athyglisbrestur á lokastigi og raunveruleikaþættirnir Æði. Lóa hefur einnig reynslu af samsköpunarleikhúsi en áhugann á listsköpun fyrir plöntur fékk hún í námi þegar hún bjó til sviðslistaverk fyrir pottaplöntur í stofunni heima hjá sér. Verkið heitir Plantasía og hefur verið í þróun síðan og tekið á sig nýjar myndir. Til að mynda var Plantasía II sýnd á sviðslistahátíðinni Plöntutíð 2020. Núverandi mynd Plantasíu er samsköpunarleikhús með börnum þar sem börnin kynnast aðferðum til að skapa sitt eigið Plöntuleikhús. Spurningarnar sem verkið spyr eru geta plöntur notið listar? Getum við gert list án þess að reyna að höfða til mannlegra áhorfenda?

bottom of page